6 Vöru(r)

Bolurinn - Hönnunarmars 2026

Farvi fékk til liðs við sig sex hönnuði til að skapa grafík á stuttermaboli og nýta þá þannig sem miðil hönnunar og tjáningar.

Ein einfaldasta flík fataskápsins, stuttermabolurinn, hefur lengi verið vettvangur sjónrænnar tjáningar í hönnun og menningu. Hann er einföld grunnflík sem getur borið hugmyndir, skilaboð og tjáð afstöðu og um leið sagt svo margt um þann sem flíkina ber.

Í verkum hönnuðanna sex verður bolurinn að striga þar sem persónulegar nálganir þeirra og ólíkar hugmyndir fá að njóta sín. Hver hönnuður nálgast verkefnið á sinn hátt og túlkar möguleika stuttermabolsins sem miðill fyrir grafíska hönnun. Útkoman verður þannig fjölbreytt safn bolahönnunar sem endurspeglar tíðarandann, ólíkan stíl og sýn þátttakenda.


Bolurinn x Pétur Geir

9.900 kr
Pétur Geir Magnússon (f. 1994) Pétur Geir lærði grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands en er í dag fjölþættur listamaður sem vinnur með mismunandi miðla, þar á meðal lágmyndir, höggmyndir, prentverk, málverk og teikningar. ----------- Þessi bolur er partur af samsýningu á Hönnunarmars 2026 þar sem Farvi fær til liðs við sig sex hönnuði til að skapa grafík á stuttermaboli og...

Bolurinn x Þura Stína

9.900 kr
Þura Stína Kristleifsdóttir (f. 1989) Þura Stína er grafískur hönnuður, framleiðandi og listrænn stjórnandi sem útskrifaðist úr LHÍ 2016, hún kláraði einnig mastersnám í listrænni stjórnun og markaðssamskiptum við NABA listaháskólann í Mílanó. Hún hefur mikla reynslu í viðburðarstjórnun, upplifunarhönnun, framleiðslu og sýningarstjórnun. Þura Stína segir um bolinn: Við erum öll drottning en það eru frávik. Bubbi er ekki drottning,...

Bolurinn x Eysteinn

9.900 kr
Eysteinn Þórðarson (f. 1991) Eysteinn er sjálfstætt starfandi teiknari og hönnuður frá Reykjavík með yfir áratug af reynslu í hönnun og auglýsingum. Frá því hann man eftir sér hefur hann verið að teikna og sérhæfir Eysteinn sig í myndlýsingum fyrir alls kyns ólíka miðla. ----------- Þessi bolur er partur af samsýningu á Hönnunarmars 2026 þar sem Farvi fær til liðs...

Bolurinn x OR type

9.900 kr
Or Type (2013) Or Type er íslensk leturgerðarsmiðja, stofnuð árið 2013 til að gefa út leturgerðir hannaðar af GUNMAD (Guðmundi Úlfarssyni og Mads Freund Brunse). www.ortype.is // instagram: @ortype ----------- Þessi bolur er partur af samsýningu á Hönnunarmars 2026 þar sem Farvi fær til liðs við sig sex hönnuði til að skapa grafík á stuttermaboli og nýta þá þannig sem...

Bolurinn x Tobba

9.900 kr
Tobba Ólafsdóttir (f. 1977) Tobba er grafískur hönnuður frá IED Milano, risoprentari og síðast en ekki síst hin eina sanna Farvamamma. Henni finnst skemmtilegast að hanna bækur og kynna og dreifa gleði risoprents. ----------- Þessi bolur er partur af samsýningu á Hönnunarmars 2026 þar sem Farvi fær til liðs við sig sex hönnuði til að skapa grafík á stuttermaboli og...

Bolurinn x Helga Valdís

9.900 kr
Helga Valdís Árnadóttir (f. 1979) Helga Valdís er grafískur hönnuður, teiknari, nostrari og skapari sem finnur hugarró í kvöldkroti eftir fjörugan dag í auglýsingalandi. www.krotdagsins.is // instagram: @helga_valdis ----------- Þessi bolur er partur af samsýningu á Hönnunarmars 2026 þar sem Farvi fær til liðs við sig sex hönnuði til að skapa grafík á stuttermaboli og nýta þá þannig sem miðil hönnunar...