"VIDEO I-IV" Farvavinur#3

50.000 kr
  • VÖRULÝSING
  • afhending og greiðslumöguleikar
VÖRULÝSING

Videó-serían byggir á 52 myndum sem margir sem ólust upp á tíunda áratugnum muna eftir. Það eru íslenskaðir titlar myndanna og kilir ritsafns nóbelskáldsins. Serían ber fram þá kenningu að mögulega séu fleiri okkar sem kunni heilu senurnar og setningar úr þessum kvikmyndum en verkum HKL. Ritsafnið telur 52 bindi en valið á titlum var nokkuð handahófskennt. Serían er í raunstærð og hentar vel þeim sem hafa losað sig við allar bækur en vilja þó vera menningarleg. 

Verk eftir Skarphéðinn Bergþóruson af sýningunni "Tvínóna forever" sem stendur yfir í Farva til 2. maí, Álfheimum 4, Reykjavík. 

Verkin eru risoprentuð með gull-lit og svörtum á svartan pappír  í upplaginu 30, númeruð og árituð.

afhending og greiðslumöguleikar
Senda eða sækja
Þú getur valið um að sækja pöntunina þínar í verslunina okkar í Álfheimum 4, á næsta pósthús/póstbox, Drop eða fá hana senda alla leið upp að dyrum.
Pantanir sem eru 10.000 kr. og hærri, sendum við frítt með póstinum heim að dyrum. Aðrar sendingar eru verðlagðar samkvæmt verðskrá Póstsins.
Greiðslur
Þú getur valið um að greiða með kreditkorti eða millifærslu

Fleiri áhugaverðar vörur